Hvernig best er að vinna Seymour Flux (Seymour x3) Sælt veri fólkið!

Ég ætla hér að koma á framfæri góða leið til að vinna Seymour
Flux, eða “Seymour í þriðja skiptið”, eins og ég hef vanið mig á
að segja. En hér er leiðin:

Í sceninu á undan sceninu sem bardaginn er, er Save
Sphere. Save-aðu. Næsta verkefni er að láta alla Aeon-ana fá
Overdrive. Það ætti að vera auðvelt. Byrjaðu á Bahamut því að það
er auðveldast. Svo Shiva, Ixion, Ifrit og að lokum Valefor.
Auðveldasta og mikilvægasta partinum er þá lokið. Láttu síðan
Wakka eða Auron fá Overdrive (eða bara báða). Síðan Save-arðu
og heldur áfram eftir rauðu örinni.

Stilltu party-ið þitt með Tidusi, Yunu og Auron / Wakka (fer eftir
því hvor er með Overdrive) . Ef Tidus er ekki með Haste láttu þá
einhvern sem er með Haste. Það er gott að kaupa nýtt vopn
handa Yunu hjá bróður O'aka skömmu áður og “eyða” einu
Return Sphere í það að láta hana hafa ‘First Strike’. Farðu
aðeins áfram og þá kemur myndband. Allt í einu sérðu
Seymour. Þú veist hvað það þýðir…

——————–
BOSS: Seymour Flux
——————–
Yuna byrjar á því að gera. Summon-aðu Bahamut og láttu hann
gera Overdrive-ið sitt sem ætti að gera u.þ.b. 11.000 í skaða á
Seymour og 10.000 á Mortiochis. Síðan gerir Seymour Banish
og Bahamut verður K.O. Láttu Tidus gera Haste á Yunu (eða
Hastega). Láttu síðan Auron / Wakka gera Overdrive-ið sitt.
Næst þegar Yuna á að gera þá skaltu Summona Shivu. Svo
heldurðu áfram að summona alla Aeon-ana. Seymour er SVO
upptekinn að drepa Aeon-ana og Mortiochis SVO upptekinn að
gera Drain á Seymour að hann hefur ekki tíma til að ráðast á
þig. Hann ætti þó að geta gert Zombie/Full-Life einu sinni eða
svo og Cross Cleave einu sinni. Tidus á að vera sá sem
læknar en Auron / Wakka að gera Attack og lækna o.s.frv.
Þegar allir Aeon-arnir hafa lokið sér af ætti Seymour að eiga
u.þ.b. 2000-6000 eftir í líf. Restin er Phycical Attack. Þegar þú
vinnur færðu 10.000 AP og Lv. 4 Key sphere.
——————–

Hér er listi yfir það hvað hver Aeon ætti að gera mikinn skaða:

Bahamut: 10.000-12.000
Shiva: 9999
Ixion: 9999
Ifrit: 9999
Valefor: 9999

Æskilegt er að Tidus hafi u.þ.b. 42 í Strength og 3000 HP.
Yuna ætti að hafa að minnsta kosti 2000 HP. Auron að hafa 47 í
Strength og tæplega 4000 HP og Wakka 3200 HP og 38 í
Strength.

Og það var allt og sumt :)

LPFAN