Yojimbo!! Upphrópunarmerki nægjir ekki þegar er talað um Yojimbo, þess vegna skellti ég tveimur á nafn greinarinnar. Af hverju? hugsið þið, hér kemur ástæðan: yojimbo er svo öflugt kvikindi að ég bakka ekkert með það að hann sé sterkasti fjandinn í FFX, þá meina ég ekki bara sterkasti Aeoninn heldur bara veran yfir höfuð.

Sumir kalla hann gagnslausann því maður getur ekki stjórnað honum allveg en þeir kunna bara ekkert á hann, YOJIMBO GETUR DREPIÐ HVAÐ EÐA HVERN SEM ER Í EINU HÖGGI. Þá er ég ekki bara að tala um einhver lítil gimp heldur alla stóru kallana, Sin, Braska´s final Aeon, Omega Weapon…piece of cake.

Yojimbo er spooky lokking fella, risastór en samt í laginu eins og maður, með rauðann hatt og í rauðri skikkju og heldur á sverði slíðruðu í hylki, við hlið hans er ljótur hundur sem fylgir honum út um allt.

OK, nú ætla ég að útskýra smá hvað hann virkar og skrifa smá guide um það hvernig á að fá það besta út úr honum.

Til þess að fá hann þarft þú að vera kominn í Calm lands, eftir að þú ferð í gegnum þau helduru áfram og finnur helli, þar býr Yojimbo. Þegar þú finnur hann þarftu að vinna hann, það er ekki erfitt og ætti ekki að reynast vandamál nema þú sért allveg hörmuleg/ur í þessum leik. Eftir að þú sigrar hann geturu fengið hann…en ekki ókeipis. Þegar þú talar við hann veldu þá “To defeat the most powerfull of fiends” og byrjaðu svo að bjóða. Alltaf bjóða aðeins meira en helming þess sem hann býður þá ættiru að ná verðinu í um það bil 200.000, keyptu hann þegar það fer svo lágt.

Nú getur þú notað hann. hann hefur þrjár venjulegar árásir sem heita Daigoru, Kozuka og Wakazaki og svo er það ZANMATO, Zanmato er einmitt það sem gerir Yojimbo sterkasta andskotann í heiminum, ef þú nærð Zanmato þá drepuru allt í einu höggi SAMA hvað það er.

Því hærra sem maður borgar honum, því betri árás gerir hann. Þú getur borgað honum SLATTA strax og þú færð hann og þá gerir hann kannski Zanmato en það þýðir ekkert að vera að eyða peningnum svoleiðis, það er betra að spara eins og mamma segir. Hann er með mis mikið “bond” við þig, það byrjar á 0 og fer upp. Ef þú borgar honum mikið og hann drepur marga fer það upp, ef þú borgar lítið og hann er sigraður fer það niður. Það er ekki erfitt að verða “besti vinur hans” ekki eins erfitt og flestir virðast halda og stendur í FAQS og öllu, þar er allt eitthvað voða flókið og sagt að maður þurfi að borga einhverjar milljónir til að hann geri gagn ÞAÐ ER KJAFTÆÐI! Best er að labba um og láta hann hamra á öllu sem þú sérð, þá “bondar” hann meira og meira við þig og byrjar smátt og smátt að gera betri hreifingar. Þegar þú ert búinn að “bonda” slatta þá byrjar hann að gera ókeipis hreifingar og Zanmmato fyrir MINNI pening, og að lokum gerir hann zanmato fyrir 1-9000 GIL eða jafnvel engan pening og þá ertu nánast óstöðvandi. Svo er aðeins meiri líkur á því að hann geri það ef hann er í overdrive.

Nú veistu margt um Yojimbo og ég vona að þetta hjálpi einhverjum, og mundu eins og vitur maður sagði eitt sinn “Þekking er vopn, notaðu það af skynsemi”. Eða var það “smallaðu alla sem á vegi þinum verða í spað með sterkasta andskota sem til er”? – ææjj ég man það ekki! Skemmtu þér!