Gleymt lykilorð
Nýskráning
Ferðalög

Ferðalög

6.942 eru með Ferðalög sem áhugamál
6.928 stig
188 greinar
920 þræðir
15 tilkynningar
5 pistlar
166 myndir
429 kannanir
5.452 álit
Meira

Ofurhugar

Dagfari Dagfari 102 stig
girlygirl girlygirl 72 stig
Acadia Acadia 68 stig
StingerS StingerS 68 stig
IngaAusa IngaAusa 66 stig
vorkipork vorkipork 62 stig
Dorikorn Dorikorn 62 stig

Við Botn Pýramídans (7 álit)

Við Botn Pýramídans Hér eru ég og fjölskyldan mín við botn Pýramídans mikla, sem við fórum svo inn í ;)

Færeyjar (13 álit)

Færeyjar Þessi staður heillar mig svo rosalegamikið hef farið þangað einu sinni ekkert smá gaman

Minnisvarði um Helförina - Berlín (7 álit)

Minnisvarði um Helförina - Berlín Þetta er minnismerki sem sett var upp til minningar um helförina sem átti sér stað í seinni heimsstyrjöldinni.

Kubbarnir eru 2711 talsins og engir tveir eru jafn stórir eða jafn háir. Fæstir þeirra standa beint upp úr jörðinni.

Listamaðurinn gaf minnisvarðanum ekkert nafn en hann sagði að hugmyndin væri komin af kirkjugarði gyðinga í Varsjá þar sem líkunum er staflað inn í svona kubba, hverju ofan á öðru.

Þegar minnisvarðinn var settur upp var úðað á kubbana efni sem verður til þess að ekki er hægt að spreyja á þá. Fyrirtækið sem seldi Berlín efnið er sama fyrirtæki og kostaði efnivið í yfir 70% gasklefanna og fjöldan allan af byssukúlum sem notaðar voru til að drepa gyðinganna í helförinni. Þegar þetta kom upp þá gaf fyrirtækið allt efnið til að losna við slæma fjölmiðlun.

Ég mæli sterklega með því fyrir alla sem leggja leið sína til Berlínar að skoða þennan minnisvarða. Það er virkilega áhrifaríkt að ganga þarna um og finna hvernig hann heltekur mann.

Samos - Grikkland (0 álit)

Samos - Grikkland Þetta er gríska eyjan Samos.

Stærðfræðingurinn Pythagoras fæddist þarna og er bær á suðurhluta eyjunnar nefndur eftir honum

Þessi eyja er mjög vinsæll staður fyrir bátafólk sem er á siglingum í Miðjarðarhafi.

Mydin er tekin þar sem við erum í ferju á leiðinni til Aþenu. Á þessari ferju þurftum við að gista í svefnpokum á þilfarinu því við týmdum ekki að borga fullt verð fyrir farið.. :)

Fred & Ginger Dance House - Prag (4 álit)

Fred & Ginger Dance House - Prag Fred & Ginger Dance House í Prag. Nefnt eftir Fred Astaire og Ginger Rogers..
Þetta hús var einhverntíman bendlað við listann “10 furðulegustu hús í heimi”.
Ég var á því þarna úti að arkitektinn hefði krumpað teikninguna saman en verktakarnir byggt húsið samt sem áður.. :)

Níagrafossar (9 álit)

Níagrafossar Vá!!

Hotel Gala (2 álit)

Hotel Gala þetta er hótelið sem að ég fer á um páskana

(þetta er fermingar gjöfin mín frá mömmu og pabba:D)

http://uu.is/solarferdir/tenerife/gististadir/hotelnr/580?ListID=0
um hótelið ^

Terra Mitica (14 álit)

Terra Mitica Terra Mitica, einn stærsti skemmtigarður í Evrópu. Sendi þessa mynd inn vegna þess að fyrri mynd er MJÖG gömul og úrelt.
Hérna má sjá öll tækin nema þa séu komin e-r ný síðan ég fór.

Annars hvað var uppáhaldstækið/sýningin ykkar? Mitt var án efa Draugahúsið og Guli rússibaninn.

Hawaii (2 álit)

Hawaii Lítil strönd á Hawaii..

Calpe (4 álit)

Calpe Þetta er Calpe sem er klukkutíma ferð frá Alicante og hálftíma ferð frá Benidorm.
Var þar síðasta sumar, mjög góður fjölskyldustaður.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok