Mig vantar staði á Íslandi sem eru frekar nálægt þjóðveginum (sirka klst) og er skemmtilegt að skoða.
Þannig er mál með vexti, að við vinahópurinn ætlum að fara hringinn í kringum ísland í sumar. Við ætlum okkur að taka langan tíma í að skoða allt sem við getum og erum búin að taka frá fyrstu 2 vikurnar í júlí. Við erum komin með nokkra góða staði en vantar fleiri sem gæti verið skemmtilegt að skoða.
Endilega segið hvað ykkur finnst :D