Ég hef verið að skoða Interrail í mörg ár og er svo gott sem búinn að ákveða að láta verða af þessu núna næsta sumar. Eina vandamálið er að vinir mínir eru annaðhvort byrjaðir að dúndra niður börnum eða eru í skóla og hafa því ekki efni á svona ferðalagi. Er einhver hérna sem stefnir á Interrail næsta sumar og vantar ferðafélaga?

Ég hef mestan áhuga á að fara til Ítalíu og Suður-Frakklands, en er opinn fyrir flestu.

Endilega sendið mér skilaboð ef þið hafið áhuga…