Mig bara langaði að gera þráð hérna :D en samt málið er að ég hef aldrei farið til útlanda á ævinni og það er það sem mig hefur mjög lengi dreymt um :( en það sem ég stefni á er að fara í heimspeysu einhverntíman með vinum mínum! en ég hef bara ekki hugmynd um hvernig það virkar, fer maður á ferðaskrifstofu og merkir við nokkur lönd á lista eða hvað? það væri mjög gott ef þið gætuð frætt mig um þetta vegna þess að þetta er langþráður draumur og ég ætla strax að byrja að vinna í þessu:) líka þá fer varla neitt meira í taugarnar á mér en þegar krakkar í bekknum mínum eru að væla yfir því að það séu heilir 5 mánuðir síðan þau fóru til útlanda á meðan þau fara að minnsta kosti 2 á ári! þau eru ekkert nema vanþakklát:(

Bætt við 1. október 2009 - 19:53
haha ég meina heimsreysu