ég er að spá hvort fólk ætli ekki út í sumar og þá hvert. Sjálf fer ég þann 19. Júlí til Portugal með tera nova sol og verð á einhverju hóteli rétt hjá Modelo í Albufeira.
Fyrir þá sem eru að spá í að fara til Portugal þá mæli ég ekki með því að þið farið á Sol Doiro það er hótel sem plúsferðir eru með og ég var á seinasta sumar það var ekki gott hótel með litlum svölum, rottugangi, og einhverjum ógeðslegum pöddum inni á klósetti. Við kvörtuðum undan hótelinu og það var langur listi sem við höfðum til að kvarta undann. reyndar er þetta ódýrt hótel með karokíbar og niðri við ströndina svo þetta er fínt hótel fyrir þá sem eru bara að djamma.
Ég tala af reynslu: