Þannig er mál með vexti að ég og vinkonur mínar vorum búnar að plana interrail núna sumar 2009 með hróaskeldu innifaldna. En guð nei, planið okkar er farið að kosta hvítuna úr augunum og við þyrftum að verulega íhuga selja öll okkar innyfli ef að við ætluðum að hafa efni á þessu. En þar sem okkur þykir svona skrambi vænt um nýrun og co þá breytist planið í innanlands interrail með örlitlum breytingum svo sem bíll í stað lestar og tjald í stað vegabréfs.
Og þá kemur spurngin. Er einhver með skemmtilegt plan, hugmyndir eða sögur um roadtrip sem hann/hún gæti deilt og gefið okkur hugmyndir. Okkur langar að ná einhverjum útihátíðum og taka okkur tíma í þetta.
fo' shizzle my nizzle