Ég og nokkrir vinir erum að fara til London rétt fyrir jól og ég var að pæla hvenær væri best að bóka flugið. Vitið þið hvort það er ódýrara eftir því sem maður pantar fyrr eða hvort það séu einhver tilboð seinna? Ég ætla bara að panta á netinu.

Svo væri ekkert slæmt að fá einhver tips um hvað er hægt að gera í London. Þá meina ég ekki eitthvað túrista sight seeing, bara ef þið hafið farið þangað og rekist á eitthvað sérstakt :) Líka uppá öryggi, þarf maður ekki mikið að passa sig? Eru ekki margir vasaþjófar í London?