Háskaför um Suður-Ameríku Ég er búinn að setja upp litla vefsíðu fyrir bókina sem ég er að gefa út um jólin. Hún heitir “Háskaför um Suður-Ameríku”. Á vefnum eru stuttir kaflar úr bókinni sem fjallar um ferðalög mín.

http://nemendur.ru.is/hutg/haskafor/

Þetta er um ferðalag sem ég fór í 5 mánuði um Suður-Ameríku. Var áður búinn að ferðast slatta, t.d. á puttanum yfir Norður-Ameríku, um Arabaheiminn, Evrópu og aðeins í Asíu.
Lenti í miklum ævintýrum í Suður-Ameríku, fimm sinnum reynt að ræna mig, næstum bitinn af krókódíl og eitruðum snáki í Amazon, skoðaði rústir Machu Picchu, náttúrundur Andesfjallanna og bæði kleif eldfjöll og skreið ofaní hella. Frábært ævintýri og hvet fólk til að segja mér hvað því finnst um bókina :)