Við erum tvær hressar 19 ára stelpur að klára stúdentsprófin á næsta ári og stefnum á að eyða sumrinu 2007 í Barcelona, jafnvel lengur, að læra spænsku, kannski vinna, og bara lifa lífinu.

Við óskum eftir fólki á aldrinum ca. 19-24 til að deila með okkur íbúð í Barcelona.

Við förum að öllum líkindum út júni 2007 og verðum a.m.k fram í miðjan ágúst.

Þeir sem hafa áhuga sendi okkur póst á anolecrab07@hotmail.com, með upplýsingum um nafn, aldur og eitthvað skemmtilegt um þig! Svo reynum við að hitta ykkur á kaffihúsi eða eitthvað.

Viva el Rey!