Skil ekki alveg, var búin að skrifa grein og senda en nú finn ég hana hvergi. Málið er að við kærasti minn erum að að velta fyrir okkur að fara til USA í vor og vera þar í einhvern tíma. Vandinn er bara sá að ég veit ekkert hvert ég á að leita eftir upplýsingum, hvert er best að fara, hvað þarf að athuga, hvernig maður verður sér út um atvinnuleyfi(og yfir höfuð hvort það sé hægt, hef heyrt að það sé nánast ómögulegt. Enn fremur hvar ég get fengið upplýsingar varðandi skóla þar. Þá hef ég í huga arkitektúr og flugvirjun. Ef þú sem lest þetta og veist kannski eitthvað af þessu eða hefur eitthvað um þetta að segja þá endilega viltu koma með það hér, ég er virkilega hjálparþurfi!!!