Sælt verið fólkið.
Ég er að forvitnast hvort eitthver hérna búi eða hafi búið í Drammen í Noregi, einnig langar mig líka að vita ef það er eitthver sem hyggur á fluttningar til Drammen á næstuni.
Ég allavegana ætla að láta reyna á þetta og þykir það frekar spennandi þótt þetta sé ekki langt stökk í einu en þetta er nýtt og ég hef ekki komið þangað áður, og vantar sem mestar upplýsingar um svæðið og hvernig á að koma sér best fyrir á skemmstum tíma.
Fluttningarnig mínir koma til með að eiga sér stað þann 14. Júlí n.k. en áður en það gerist ætla ég að fríka smá út í Mallorca í 2 vikur.

Endilega verðið í bandi því mig langar að vita “allt” áður en ég fer út.

Mbk.
Vergo