Halló

Ég er 19 ára og hef mikinn áhuga á því að ferðast. Ég fór í Interrail nú í sumar og hef ákveðið að gera eitthvað magnað næsta sumar. Mér langar bara að koma mér út í vor og láta það svo ráðast hvert verður haldið, kannski tekið flug til Bankok og fara að skoða sig um í Thælandi eða þá bara fara aftur til Austur Evrópu og einbeita sér bara að Rúmeníu, Búlgaríu og þeim löndum. Ég er bara að spá ef að einhver er í sömu pælingum og ég og vantar ferðafélaga þá er ég til í að skoða möguleikann á því, það gæti verið gaman að finna einhvern sem hefur brennandi áhuga á þessu og ferðast með honum/henni. Endilega hafið samband ef þið hafið áhuga, vinir mínir eru allir svo latir að þeir nenna ekki út aftur :( en ég verð bara að fara aftur næst sumar…..