Hefur einhver hérna komið til Thailands? Eða hefur búið þar? Mér þætti þá gaman að fá svör frá þeim hér.
Alveg síðan ég las bókina, Ströndin eftir Alex Garland, þá hef ég verið sjúk í að komast til Thailands, í bókinni eru miklar náttúrulýsingar, og landi á menningu er lýst á mjög skemmtilegan
hátt.

Ég hef ég verið að skoða myndir af Thailandi, sem eru alveg sjúklega flottar, sérstaklega af Tælensku eyjunum, en einn daginn þá ætla ég að fara þarna með bakpokann minn og ferðast út um allt landið (ekki það að ég er að búast við einhverju svipuðu og aðalpersónan í bókinni lenti í, þið sem hafið lesið hana)heldur hef ég alveg óbrennandi áhuga á að ferðast um þetta land.

Endilega þið sem hafið komið þarna og verið þarna eitthvað og þekkið til, megið ráðleggja mér.