Ugh.. Ég á Huawei U1250.
Ég keypti hann í janúar 2010 og ekkert hefur verið að honum hingað til, en núna vill hann aldrei vera í símasambandi!
Hann hoppar frá fullu sambandi niður í utan þjónustusvæðis eins og honum sýnist og dettur út í miðju símtali.
Ég fæ sms svona 20 mínútum eftir að þau voru send.
Ég fékk nýtt SIM kort í hann en ekkert breyttist.
Er þetta síminn eða er þetta símafyrirtækið (nova)?