Sæl veriði,

Heyrðu ég er hér að óska eftir síma að nafni Motorola Pebl U6. Ef þið vitið ekki hvaða sími þetta er þá er hér linkur að honum: http://www.motorola.com/motoinfo/product/details.jsp?globalObjectId=87

Málið er að kærastan mín átti svona síma fyrir meira en ári síðan. Það var keyrt yfir símann og síðan þá hefur hún alltaf verið að tala um hvað hún saknar hans og langar í svona síma en hann er hvergi til í búðum á Íslandi.

Sökum þess að gengið er í rugli að þá ákvað ég að leita hér á Huga fyrst.

Á einhver svona síma, þekkir einhvern sem á svona síma eða getur einhvernveginn útvegað mér hann (alveg sama með hvaða hætti) ?
Ég yrði verulega þakklátur.

ps. Ég hafði ætlað að gefa henni símann í jólagjöf.

Takk fyrirfram
-Ásgei