Til sölu nánast ónotað 1gb sd micro minniskort frá Samsung. Fylgdi með símanum mínum en ég keypti mér stærra (4gb).
Sel það á 1500 kr gegn því að það sé sótt (bý í Kópavogi).
Minniskortið ætti að virka í flesta 3G síma sem eru ekki SonyEricsson. Virkar allavega pottþétt í öllum nýjustu Nokia og Samsung símunum (þessum sem þú færð hjá NOVA).
Fylgir með Adapter svo þú getur notað það sem venjulegt SD kort í myndavél eða hvað sem er. Getur einnig sett kortið í minniskortalesara og dælt tónlist inná það eða tekið myndirnar og myndböndin af símanum þínum inná tölvuna.
Hafið samband í skilaboðum eða í þessum þráð fyrir nánari upplýsingar.