Samkvæmt frétt í sænska netmiðlinum mobil.se þá kynnir Nokia nýjan síma á fréttamannafundi í Barcelona á mánudaginn. Einu símarnir sem Nokia hefur ekki skipt út á árinu eru í 8800 og “basic” flokkunum (3330 ekki talinn með). Því finnst mér líklegast að um sé að ræða nýjan 88XX síma sem á að keppa við T68, eða nýjan 33XX eða 51XX í basic flokknum.