Svo er mál með vexti að mér barst sms frá einhverju sem kallast ,,Dating“ og í póstinum stóð ,,Thank you for subscribing to www.irrealhost.com - Dating service! Your phone will be charged now $2.00 per day until you unsubscribe online”

Þetta fannst mér merkilegt þar sem að ekki skráði ég mig í stefnumótaþjónustu einhverskonar auk þess sem þessi síða er hálfvafasöm. Því held ég að þetta sé bara eitthvað rusl-sms. Mín spurning er: eru fleiri að fá rusl-sms send utan úr heimi? Mér þætti það slæmt ef að þetta er það sem koma skal, rusl-póstarnir(e-mail) eru nógu slæmir án þess að þetta sé komið í símana líka.