Frábær sími og allt það, hæstánægður.

Eini gallinn er að ég virðist ekki geta náð í mp3 tóna í hann, þó hann styðji þá alveg augljóslega.

Vandamál 1.

Usb tengi við tölvuna, ég fór að öllum leiðbeiningum, setti upp driverana og installaði síðan símanum þegar ég tengdi hann við en tölvan finnur ekki símann.

Vandamál 2.

Sækja tónana á netinu, ég fer á siminn.is og finn tón sem mig langar í, ég ýti á sækja og fæ sms í símann minn (sem líklega rukkar strax.) svo ýti ég á að sækja skilaboðin en ekkert gerist og þegar ég reyni aftur þá stendur að ég geti bara sótt hvern hlut einu sinni. Hefur komið fyrir núna á 3 tónum og ég ætla ekki að reyna meira.

Vandamál 3.

Dælan segir þegar ég reyni að sækja mp3 tóna að síminn minn styðji ekki þessa þjónustu, sem ég skil ekki.

Hjálp.