Kæru Hugarar.
Ég vil aðeins segja frá bíókortinu hjá tali sem mér finnst mjög sniðugt, sérstaklega í jólagjafir.

Það er hægt að fá það með gsm hjá tali eða kaupa það en það kostar 2990 og þá fylgjir 1000 krónu inneign með en annars með síma 3000.
En það er ekki það eina sem er í þessu bíókorti, eins og nafnið segir er auðvitað bíóferðir sem eru 5 talsins en það er einungis hægt að fara þá í Regnbogann, Smárabíó, Laugarrásbíó og Borgarbíó í Akureyri, 25% afsláttur í skífunni af íslenskri tónlist, 2 fyrir 1 í skautahöllinni og 2 fyrir 1 á Subway.

Gildistími kortsins er frá 15. janúar 2003 til 28. febrúar 2003.

Tal er með mikið úrval og einnig eru símarnir hjá tali líka yfirleitt á góðu verði og þurfa sumir ekki að fara að endurnýja símana.
Ef þeir eru hjá öðru símafyrirtæki geta þeir bara skift ef þeir vilja fá þetta bíókort með síma.

Kv. Hallat