Það er hundleiðinlegt að hamra einhverjar stillingar inn í símann. Það er líka tilgangslaust ef þú getur fengið þær sendar!

Ef þú ert með GSM kort frá Símanum getur þú sótt WAP stillingarnar í Nokia eða Ericsson símann þinn með SMS skilaboðum. (Ef síminn þinn er með WAP það er að segja).

Þú sendir nafnið á símanum þínum í númerið 8900900.

Ef þú átt t.d. Nokia 3510 sendir þú skilaboðin:

N3510 í númerið 8900900

Ef þú átt Ericsson t20e sendir þú skilaboðin:

T20e í númerið 8900900

Þessi skeyti sem eru nefnd hér að ofan senda “Staðal” stillingarnar, það er þær stillingar sem líklegast er að þú þurfir að nota.

N3510 sendir til dæmis uppsetningu fyrir GPRS áskriftina WAPpari sem er sjálfvirkt tengt við númerið þitt.

T20e sendir GSM Data 14.4 WAP stillingar í T20 símann, hann hefur ekki GPRS.

Ef þú vilt fá aðrar stillingar getur þú bætt einhverju af þessum endingum í skeytið:

VAF - Sendir stillingar fyrir GPRS VAFrara áskriftina - Ath Það þarf að sækja sérstaklega um þessa þjónustu, en það er gert í þjónustuveri Símans, 8007000.
WAP - Sendir stillingar fyrir GPRS WAPpara áskriftina
DATA - Sendir stillingar fyrir GSM Data tengingu á 14.4 kb/sek hraða
UTL - Sendir stillingar sem eiga að tryggja öruggt samband í útlöndum.

Dæmi: T68i VAF sent í 8900900

2 efstu stillingarnar eru eingöngu í boði fyrir þá síma sem hafa GPRS.

Ef þú ert ekki viss hvað þú þarft, skaltu bara senda nafnið á símanum.

Listi yfir alla kóðana sem í boði eru er hér: http://www.simi.is/control/index?pid=17668

Þessari grein er ætlað að auðvelda okkur að nýta þá möguleika sem GSM síminn okkar hefur.

Hafið þið áhuga á að sjá fleiri svona greinar inni á Huga.is? Lumar þú kannski á góðu tipsi?