Nokia N95, sankallað afrek Mig langar aðeins að fjalla um Nokia símann N95 sem er nýjasti og besti þriðju kynslóðar sími sem til er. Hann er troðfullur af allskyns möguleikum þrátt fyrir að vera ekki of stór og þungur.

Það helsta sem er nýtt og flott í innihaldinu á þessum síma er: 5 megapixla myndavél, GPS, Landakort sem virkar eins og Google earth, Wireless LAN og 2-way sleði.

N95 flokkast sem sleðasími og hægt er að renna honum í tvær áttir, upp fyrir tölu- og bókstafi og niður til að sjá takka fyrir afspilun tónlistar eða bíómynda (play, pause, rw o.s.f.r.)

Myndavélin á þessum síma er hreint út sagt ótrúlega góð þar sem að þeir bestu í dag eru 3 megapixla myndavél. Nú auk myndavélarinnar er flass.

Það eru fullt fullt af hlutum í þessum síma sem ég nenni ekki að segja frá (þeir eru það margir) en ekki má gleyma að þetta er symbian sími sem býður upp á endalausa möguleika varðandi forrit sem hægt er að setja í hann.

Ég prufaði svona síma á Tækni og vit sýningunni fyrir stuttu síðan og var ég mjög hrifinn, horfði á smá bút úr kvikmynd og eru gæðin í skjánum sláandi.

Síminn kemur í verslanir á Mánudaginn 23. Apríl næst komandi hjá farsímalagerinum og verður verðið eitthvað um 89.990kr en svo kemur hann seinna í Hátækni á um 99.999kr.
Arguing on the internet is like running the special olimpics…