Grein sem birtist í sænska tímaritinu Mobil.
Höfundar: Samin af Christer Blomqvist og Niklas Holmgren sem vinna hjá AB Signalstyrkan

Áhugaverð lesning um farsíma, bilanir, viðgerðir og mannleg samskipti

Almennt um raka- vatns og höggskemmdir.
Sími getur bilað á margan hátt, en ein algengasta bilunin er af völdum raka. Vatn er versti óvinur rafmagnstækja, því vatnið leiðir straum og orsakar tæringu. Rakaskemmdir geta komið til af fjölmörgum ástæðum, lítum á nokkur algeng dæmi:
Þú missir síminn beint í vatn, geymir hann í vasanum á úlpunni eða í vasanum á golfkerrunni (það rigndi jú, en hver man eftir því í hita leikssins). Síminn hefur verið notaður á mjög köldum eða mjög heitum stað (saggamyndun), barnið þitt fær símann lánaðan og nagar hann örlítið, þú lánar símann og hann blotnar óvart, sá sem fékk hann lánaðan er kannski ekkert að segja þér frá því af því símann virkar fínt, en hvað gerist eftir tvær vikur?

Bilunin kemur smátt og smátt í ljós.
Eins og áður sagði eru óteljandi ástæður fyrir því að síminn skemmist af völdum raka, og oft tekur maður ekki eftir því þegar það gerist og síminn virkar fínt til að byrja með. Nokkrum dögum, vikum eða mánuðum seinna hættir hann að virka. Þú ferð með símann á verkstæði og færð þær fréttir að síminn sé rakaskemmdur og þar með dottinn úr verksmiðjuábyrgð. Rakaskemmd getur verið lengi að koma í ljós. Rafrásir tærast smátt og smátt og bilunin gerir vart við sig. Tæringin sjálf er rakadræg og vex þannig að sjálfu sér, ekki ósvipað því hvernig t.d. bíll ryðgar.

En hvernig gerðist þetta?
Algeng spurning sem við fáum frá viðskiptavinum okkar er “hvernig gerðist þetta?”, eða “hvers vegna er síminn rakaskemmdur?” Viðgerðarmenn á farsímaverkstæði geta ekki sagt nákvæmlega til um hvers vegna sími er rakaskemmdur, á sama hátt og viðgerðarmaður á réttingaverkstæði getur ekki sagt til um hvernig bíllinn beyglaðist. Það eina sem við getum staðfest er að skaðinn er skeður.
Oft fáum við þau svör frá viðskiptavinum okkar þegar við færum þeim slæmu fréttirnar að það sé einfaldlega ekki mögulegt að síminn sé rakaskemmdur, þrátt fyrir að skemmdin komi greinilega í ljós við skoðun.
Farsímar eru einfaldlega notaðir þannig að það er mjög erfitt að halda slíku fram, þó síminn fylgi þér hvert sem þú ferð,inni sem úti, þá ertu yfirleitt ekki með auga á honum 24 tíma á sólarhring.

Hvers vegna engin ábyrgð á rakaskemmdum síma?
Ábyrgðin gildir fyrir verksmiðjugalla. Skemmdir vegna utanaðkomandi ástæðna, eins og vegna höggs eða raka eru ekki innifaldar í verksmiðjuábyrgðinni. Allir venjulegir farsímar eru einfaldlega ekki byggðir til að þola raka, til þess þyrftu þeir að vera töluvert stærri -og dýrari.

Græðir þjónustuverkstæðið á því að síminn er rakaskemmdur?
Því miður halda sumir að þjónustuverkstæðið segi að síminn sé rakaskemmdur þó að hann sé það ekki, kannski til að geta rukkað meira. Þetta er alrangt. Martröð viðgerðarmannsins er sú að opna síma og uppgötva að hann er skemmdur af völdum raka. Það er erfitt og oft ekki hægt að gera við símann, hann þarf að eyða dýrmætum tíma í að útskýra vandamálið fyrir viðskiptavininum, sem kannski trúir honum ekki og bregst hinn versti við. Ef viðskiptavinurinn ákveður að reyna ekki viðgerð situr verkstæðið uppi með ónýtan síma og fær ekkert greitt fyrir sína vinnu. Nei, lífið er mikið auðveldara ef síminn reynist ekki vera vatnsskemmdur, þá rukkar verkstæðið framleiðandann ef síminn er í ábyrgð, eða viðskiptavininn ef hann er það ekki og allir eru ánægðir.

Að gera við rakaskemmdan síma.
Stundum er hægt að gera við vatnsskemmdan síma og stundum ekki. Bilunin getur verið mjög flókin og erfitt að finna hana. Þótt síminn sé hreinsaður upp geta leynst tæringar sem með tímanum éta sig inn í prentplötur og íhluti. Svo erfitt er að gera við vatnsskemmda síma að almenna reglan er sú að það er ekki gert. Áhættan felst aðallega í því að þrátt fyrir að gert sé við allar sjáanlegar bilanir geta leynst tæringar á stöðum þar sem ekki er hægt að sjá þær. Þessar tæringar geta síðan valdið bilunum seinna meir, eftir 1 dag, 1 mánuð eða jafnvel 1 ár. Vilji eigandinn taka þessa áhættu og reyna viðgerð gerir hann það á eigin ábyrgð og þarf að fylla út eyðublað því til staðfestu. Sama á við um höggskemmdir

Höggskemmdir.
Höggskemmdir og rakaskemmdir eru á margan hátt svipaðar. Bilun getur komið í ljós mörgum mánuðum eftir að síminn verður fyrir höggi. Plastefnin sem notuð eru utan um síma í dag eru mjög sterkt og eftirgefanleg þannig að oft sér ekkert á símanum þegar hann er skoðaður að utan, þrátt fyrir að afleiðingar falls séu greinilegar þegar síminn er opnaður. Þegar sími verður fyrir höggskemmdum geta komið sprungur í íhluti eða lóðningar. Þegar loft kemst inn í lóðninguna byrjar hún smátt og smátt að tærast. Bilunin kemur því ekki strax í ljós, og síminn verður viðkvæmari fyrir frekari áföllum.

Aldurskvillar.
Bilanir koma til af fleiru en af völdum raka eða höggskemmda. Íhlutir eldast misvel og hætta að virka eða gera ekki nákvæmlega það sem ætlast er til af þeim. Símar hafa gott af smá “uppherslu” alveg eins og bílar, og stilling á tíðni og sendiorku getur gert kraftaverk.

Ábyrgðarviðgerðir.
Það er ómögulegt fyrir framleiðendur að ábyrgjast að símar bili ekki á ábyrgðartímanum. Allir símar eru stilltir og prófaðir í verksmiðjunni, en samt getur bilun komið upp seinna. Lóðning getur bilað, stundum endast íhlutir ekki eins vel og til var ætlast og skrúfur geta losnað. Þess konar bilanir falla undir verksmiðjuábyrgðina. Þú kemur með símann á þjónustuverkstæðið, sem sér um að leysa vandamálið.

Ábyrgð á almennum viðgerðum.
Við rafeindviðgerðir tíðkast að gefa 3ja mánaða ábyrgð á almennum viðgerðum. Undantekningar eru þó gerðar á raka- og höggskemmdum. Ábyrgð á almennri viðgerð þýðir þó ekki að síminn sé í fullri ábyrgð í þrjá mánuði eftir að viðgerð fer fram. Aðeins er tekin ábyrgð á þeirri viðgerð sem framkvæmd var eftir bilanalýsingu eigenda. Ef verkstæðið gerir við rafhlöðutengið og stillir símann, getur það ekki borið ábyrgð á því þótt hátalarinn hætti að virka eftir 2 mánuði.

“Síminn var í viðgerð en samt virkar hann ekki!”
Örsjaldan kemur það fyrir að síminn bilar strax eftir að viðgerð lýkur. Það þarf ekki að taka það fram að ekkert þjónustuverkstæði sendir frá sér síma sem það veit að er bilaður. Það þýðir einfaldlega aukinn kostnað fyrir verkstæðið því vitanlega fær það símann strax í hausinn aftur. Stundum eru bilanir þess eðlis að þær “plata” viðgerðarmanninn. Hann opnar símann, sér laust tengi, lóðar það, skrúfar símann saman og prófar hann. Allt virkar. Það að tengið var laust vegna þess að síminn datt, og lóðning á tenginu við hliðina á er með örlítilli sprungu, svo smárri að hún er ógreinanleg, gat viðgerðarmaðurinn ekki vitað. Síðan er síminn sendur með póstinum og þegar viðskiptavinurinn fær hann aftur hefur sprungan tærst og ekki er hægt að kveikja á símanum. Gremja viðskiptavinarins er að sjálfssögðu skiljanleg, en því miður er ekkert annað að gera en að senda símann til baka þar sem verkstæðið gerir við símann aftur.

Undarleg skepna síminn!
Við vonum að ofanskráð gefi örlitla mynd af því sem getur bilað í símanum þínum. Hann samanstendur jú af þúsundum íhluta, með ennþá fleiri þúsundum lóðninga. Í símanum eru ein eða fleiri prentplata, hver og ein með mörgum lögum af plasti, glertrefjum og koparrásum. Íhlutirnir eru úr kísil, plasti og járni, lóðningarnar samanstanda af tini, blýi og silfri. I tengjunum er gull. Fram- og bakhlutar gerðir úr meiru af plasti og takkamottan úr gúmmíi. Og allt þetta blandað saman á að virka sem sími. Það verður að teljast tæknilegt afrek að það gerir hann oftast.
Snúið og staðfært úr sænsku. Af hverju bilar síminn