Nokia 3330 vs. Ericsson T20e Flestir sem eru að pæla í að kaupa sér nýjann síma og vilja ekki eyða mikið meira en 25 þúsund kall í síma enda venjulega með Nokia 3310 og núna 3330. Fæstir taka hinsvegar eftir því að það er kominn ansi álitlegur sími frá samkeppnisaðila Nokia, Ericsson.

Ericsson T20e er með 1150 milliampera Lithium rafhlöðu á móti 900 milliampera NI-MH rafhlöðu. Ég hef látið T20e síma endast í viku með því að nota hann spart. Báðir símarnir hafa WAP, reiknivél, vekjaraklukku, skeiðklukku, móttöku og sendingu á hringitónum, leiki, Chat, raddstýrða hringingu og sitthvað fleira sem ég er að gleyma.

Skjár T20e símans er minni en á 3330, 3 línur á móti 4-5, en er mjög vel nýttur, þannig að stærðin kemur ekki að mjög að sök.

Yfir allt verð ég að segja að mér fynnst Ericsson T20e falla í skuggann fyrir Nokia 3330 algerlega að ósekju. Hann hefur öflugri rafhlöðu, er mjög þægilegur í notkun, er minni og honum fylgir lítil ól sem auðveldar konum að finna hann í troðnum handtöskum. ;)

Áður fyrr var mjög auðvelt að leiðbeina fólki að kaupa sér nýjann GSM síma. Maður teymdi það að Nokia rekkanum og kláraði dílinn á nokkrum mínútum. Það er líka hægt að gera þetta í dag, en Ericsson rekkinn er í dag fullt eins góður. Þannig að ef þú ert að pæla í að kaupa þér nýjann síma skaltu að minnsta kosti skoða Ericsson T20e áður en þú ákveður hvað þú tekur. Þú munt örugglega ekki sjá eftir því!

Hver er svo boðskapurinn í þessari grein? Nokia eru kóngarnir í farsímabransanum í dag. Bilið á milli þeirra og hinna er hinsvegar orðið geysilega stutt á ýmsum sviðum og stundum getur borgað sig að skoða vel það sem samkeppnisaðilarnir bjóða upp á.
Motorola eru til dæmis að kynna mjög sterka línu af nýjum símum í sumar.