Ég hef verið að velta fyrir mér, ég á 6110 og er mjög ánægð með hann að öllu leiti. Foreldrar mínir eiga hins vegar 6210 og mér hefur fundist að þó að þeir séu nýrri og léttari og betri að því leiti þá sé uppsetningin öll óhentugri.
Mér finnst líka eins og gömlu símarnir endist betur. Ég keypti minn í hitt í fyrra sumar og hann hefur mátt þola vatnsböð, vera úti í heila nótt, detta á milli hæða og fleira og hann er ennþá í lagi.
Síminn hennar mömmu var alltaf að slökkva á sér, hringdi ekki og bara endalaust vesen og þurfti að fara í viðgerð eftir mánuð. Ein vinkona mín keypti líka 3310 um daginn og missti hann í gólfið og skjárinn brotnaði.
Voru gömlu týpurnar betri?
Talbína