Ég á Nokia 7110 og hann er oft að frosna, svipað og tölvur gera. Hvað er í gangi ? Ég veit um aðra sem eiga svona síma og eru með þessi sömu vandamál. Síðan er slyðrið (þetta sem rennur niður) bilað hjá mér. Gerði Nokia feil með þennan síma ? Ég átti 6110 og hann er enn í fullu fjöri eftir að hafa hrapað tvær hæðir niðrá steinsteypta gólfplötu, blotnað og verið 2 ár í stanslausri notkun. Er 6210 kannski bara svarið ?