… á farsíma (og símamarkaði almennt) markaði?? ég segi nei, það að annað fyrirtækið sé bundið af lögum að vera dýrara en hitt, og það svo muni tæpum 10% gerir það að verkum að ekki þrífst raunveruleg samkeppni, landssíminn má ekki jafna verðin sem ogvodafone býður. forsagan er í stuttu máli sú að á sínum tíma kærði tal landssímann rúmlega 30 sinnum, og vann eina þeirra, sú er varðað stórnotenda áskrift, ástæðurnar sem gefnar voru, voru þær að landssíminn væri svo stór að tal ætti rétt á að bjóða uppá lægri mínútugjöld á meðan fyrirtækið væri að ná fótfestu á markaðinum. nú eru liðin nokkur ár síðan þetta gerðist og lögin eru enn í gildi, fólk kvartar yfir því að síminn sé dýr, en veit ekki að hann má ekki jafna hitt fyrirtækið. og nú spyr ég aftur, er einhver sem telur þetta eðlilegt?? það get ég ekki séð.

það væri eins og að opna matvöruverslun á hagkaupstorginu og ætlast til þess að hagkaup myndi ekki jafna verðin sem ég væri að bjóða uppá, heldur væri 5-10% dýrari.