Ég var að kaupa mér Nokia 7210 símann nú fyrir stuttu og í
honum eru Polyphonic hringitónar (polyphonic er midi dæmi
sem spilar 4 tóna í einu) en ég var að spá hvort að einhver
vissi hvar hægt væri að ná í polyphonic hringitóna á netinu?
Eini staðurinn sem ég er búinn að finna eru einhverjar
breskar síður þar sem maður þarf að hringja í eitthvað númer
og borga þar af leiðandi gígantíska upphæð á endanum fyrir
einn hringitón!
Ég hef prófað að ná í midi lög á netinu en þau koma bara ekki
öll nógu vel út þegar þau eru komin í símann ( nota PC-Suite
forritið til að senda gögn með Infrared í símann) þeas að
stundum breytast midi lögin í eins tóna lög…