Við höfum núna byrjað á því að setja upp kubb þar sem að við munun setja upp allar þær ævintýrabókmenntir sem að við og þið getið fundið.

Þessi hugmynd er byggð upp til að hafa ákveðinn ramma utan um bókaflokkinn og með þessu móti er auðveldara fyrir okkur að vita hvaða bækur eru í boði í þessum flokk og auðveldara að finna þær.

Við hvetjum ykkur til að senda okkur skilaboð ( eða segja frá hérna ) þær bókaseríur eða bækur sem að þið vitið um og vantar í kubbinn ( það þarf að ýta á “ Smá Meira ” í kubbinum til að sjá flokkana )

Við höfum núna bara sett inn stuttan lista af bókum en hann mun vonandi lengjast með okkar og ykkar hjálp :)

ATH: Enungis eru um ævintýrabókmenntir ( fantasíur ) að ræða og það væri vel þegið ef þið gætið bæði sent okkur ensku og íslensku þýðinguna á titli bókarinnar eða bókaseríunnar :)

Með von um góðar undirtektir: Contemplative og LindeLou, stjórnendur á /fantasia.