Til viðbótar við Fan Art keppnina sem ég vona að fleiri fari nú að taka þátt í þá ætlum við að endurvekja Ævintýrabókmennta triviurnar.

Við höfum fengið DrHorrible til að fara að vinna aftur í því að senda inn triviur hérna undir Trivia greinaflokkinn. Og líklega munum við stjórnendur leggja hönd á plóg þegar tími gefst.

Við megum vonandi eiga von á nýjum spennandi trivium hérna inn en það er verk að halda þessu uppi svo ef það er áhugi hjá öðrum notendum að hjálpa til þá endilega senda skilaboð, en þá er krafist þess að notandinn hafi þekkingu á mörgum bókaseríum svo að triviurnar nái til allra hliða bókaflokksinns sem við stundum hérna.

Og annað; við viljum ýta undir greinarskrif, mjög fáar greinar sem koma hérna inn en við vitum að það er margt í hausnum á ykkur sem að hægt er að koma að. Þarf ekki að vera 5 bls ritgerð, heldur er nóg að segja frá nýjustu bókinni sem þú varst að lesa eða bara hvað sem er, svo lengi sem að er lagður lágmarksmetnaður í verkið :)

Með von um góðar undirtektir: Contemplative og LindeLou, stjórnendur á /fantasia.

Bætt við 18. júlí 2009 - 15:23

Frestur rennur út á miðnæti þann 31 Júlí.