Bannerakeppni Kæru notendur.

Við stjórnendur áhugamálsins höfum ákveðið að halda bannerkeppni. Þið megið senda inn eins marga bannera og þið viljið í keppnina. Stærð banneranna þarf að vera 245*54.

Væntanlega fá notendur að kjósa um sinn uppáhalds banner í könnun að keppninni lokinni sem mun standa til 1. apríl nk. Stjórnendur áskilja sér rétt til að lengja keppnina ef svo ber undir.

Best er að þið sendið bannerana inn sem mynd og látið vita að viðkomandi banner taki þátt í keppninni.

Það verða engin verðlaun önnur en heiðurinn að því að hafa hannað banner áhugamálsins.

Skemmtilegast væri að bannerinn myndi endurspegla sem mesta fjölbreytni

Karat.