Við höfum ákveðið að byrja með triviur sem ChocoboFan og DrHaHa munu sjá um til að byrja með allavegna, þær munu koma reglulega og spurt verður úr margskonar bókmenntum svo það koma pottþett spurningar úr þinni bók.

Ég vona að þetta verði öllum til ánægu og lífgi aðeins áhugamálið upp, erum samt ekki alveg búin að ákveða hvernig þetta verður, það er að segja uppsettningin. Svo við verðum bara að bæta þetta smá saman. Endilega ef þið hafið eitthverjar hugmyndir um hvernig trivian getur verið þá ekki hika með að bera hana/þær fram, og endilega allir að taka þátt. Því fleiri því skemmtiegra :)

Njótið nú.