Hæ, hæ!

Mig langar til að kynnast íslenskum áhugaspunahöfundum (fan fiction), alveg sama hvaða fandom þið skrifið í, og bjó því til að gamni spjallborð á Fanfiction.net fyrir slíkt. Hérna komist þið á spjallið: http://www.fanfiction.net/forum/Icelandic_fan_fiction/54033/

Reyndar þarf maður að vera skráður á síðuna til að geta tekið þátt í umræðunum en það er ókeypis og tiltölulega einfalt.

Ég veit ekki hvort einhver annar en ég hefur áhuga á þessu, hvort ég er að gera eitthvað sem er búið að gera annars staðar eða hvort það eru yfirleitt einhverjir að skrifa áhugaspuna hérna (en ég býst þó fastlega við því). Tékkið hvort þið hefðuð áhuga á að vera með í spjallinu og ef þið þekkið einhverja sem hefðu hugsanlega áhuga, megið þið gjanan láta þá vita.
Forever is such a long, long time and most of it hasn't even happened yet.