Höldum áfram að tala um trailerinn. ^^

Þið sem hafið séð hann, tókuð þið eftir því þegar Súsanna spurði “who are you” og hann svaraði svona voðalega virðulega “prince Caspian”. Trompkin var við hliðina á honum, lítill og krúttlegur. Allt gott og blessað með það, en í bókinni hittu þau Trompkin fyrst og hann sagði þeim frá Kaspían og því öllu, þau hefðu ekki átt að spyrja. Þau hittu hann við hauginn…

Reyndar þegar ég fer að hugsa um það, hittu Súsanna og Lúsía (hét hún það ekki á íslensku?) hann nokkuð fyrr en í endann? Pétur og Játvarður fóru inn í hauginn en þær með Aslan, ef ég man rétt… ah, fjandans Disney/Walden að eyðileggja þetta -_- Ég á eftir að koma með langa grein hérna þegar myndin kemur til að bauna yfir hana!