Ef að verðirnir ná að stela síðasta egginu af Galbatorix finnst mér það blasa við að það munu klekjast út fyrir Roran og er nánsast sannfærður um það. Bæði vegna þess að hann er skildur bæði Eragon og Murtagh sem fengu báðir dreka og í öðru lagi vegna þess að hann er mjög sigursæll í bardögum og nær að koma heilum bæ til Súrda sem og að vinna tvo sterka galdramenn (aka tvíburarnir) í bardaganum milli varðanna og veldisins. Roran er orðinn stór þáttur í sögunni en er algjörlega berskjaldaður gegn töfrum og að sökum ákveðni hans held ég að hann eigi eftir að vera eitt lykilhlutverkið í baráttu varðanna gegn veldinu.