Þið sem sækið tunglfundi getið sótt suma fyrirlestra á heimasíðu tunglfundanna http://www.visindi.is/tunglfundir . Þetta er alveg einstaklega þægilegt, sérstaklega ef maður missir af fyrirlestri. Þá getur maður allavegna nálgast einhverjar upplýsingar þarna.

Það hafa einnig verið auglýst mörg spennandi námskeið á tunglfundunum svo það er mikilvægt að fylgjast með ef maður vill ekki missa af. Komandi námskeið eru um nýju spásteinana hans Reynis Katrínar (bók og steinar innifalin), jurtir og notkun þeirra (Jónína Berg, Þórsnesingagoði), varnir gegn ásóknum og fleiri námskeið um grunnatriði Wicca (bæði með Snæuglu). Undirrituð ætlar á allt!

Bestu kveðjur,
Divaa