Sverðaþristur Þetta spil merkir yfirleitt sambandsslit, vinaslit eða hjónaskilnað

Einnig getur spilið táknað lengri eða skemmri aðskilnað.

Þetta spil táknar alltaf erfiðleika, t.d. áhyggjur og óhamingju vegna ótryggs ástarsambands, en þó bendir það alltaf til jákvæðra breytinga sem koma á endanum, að eitthvað nýtt kemur í stað þess gamla sem hefur verið rutt úr vegi.