Bikardrottning BIKARDROTTNING

Bikardrottning er ástkonan. Þetta er kona sem er dáð af vinum og vandamönnum. Listræn er hún og í ástarlífinu er hún mjög rómantísk. Einnig er líklegt að einhverjir dulrænir hæfileikar leynist innst inni og þá oftast skyggnihæfileikar. Þótt þessi manneskja sýnist hörð og sjálfstæð er innst inni viðkvæm manneskja sem elskar dagdrauma. Þessi kona er góður félagi.