Bikarkóngur Hér kemur fyrsta greinin um TAROT spil hin minni og ætla ég að byrja á Bikurunum.

Bikararnir eru tákn Kærleiks, velferðar í námi, hamingju, öryggi, góðan félagsskap og allsnægtir. Einnig samsvara þeir hjarta í venjulegum spilum.

Bikarkóngur
Tákn fyrir embættismann eða lögfræðing. Maðurinn er skilningsríkur og skapandi umhverfi. Þessi maður verður góður eiginmaður. Hann hugsar fyrst og fremst um velferð sína og fjöldskyldu sinnar.