ég er ekki skyggn en held að ég sé nú eitthvað næm. það sem mig langaði til að forvitnast um er það þegar að fólk fer út úr efnislíkamanum.
ég lenti í því fyrir nokkrum árum að mér leið mjög illa var m.a. mjög þunglynd og kvíðin. Þá fór að bera á því hjá mér á nóttinni þegar að ég svaf að mér fannt ég fara út úr líkamanum og svona svífa yfir sjálfri mér (gerði mér samt grein fyrir að ég var sofandi og þetta væri “bara” draumur) mér fannst þetta mjög óþægilegt og var alltaf að reyna að komast til baka og það gekk mis vel,yfirleitt var ég hálf hrædd. hvað var eiginlega að ske veit ég ekki þ.e.s hvort þetta var einhver afleiðing af minni líðan eða hvað, nema að þetta hefur ekki skeð núna sennilega í 2-3 á