um daginn fékk ég martröð sem hljómar kanski ekkert hræðilega en var samt martröð fyrir mér! hér kemur hann:
ÉG er tvær konur; önnur er lítil og fíngerð og dálítið dramatísk en hin er skynsöm og dálítið lokuð og köld á yfirborðinu.
við erum staddar við op að hálfgerðu völundarhúsi og erum að flýja undan einhverju. tveir karlmenn eru með okkur (sem ég þekki ekki) annar þeirra biður fíngerðu stelpuna um að halda á farangrinum sínum meðan við hoppum niður um op sem liggur að völundarhúsinu. hún samþykkir það og hann lofar að grípa hana þegar hún hoppar niður. Þegar allir eru komnir niður og fíngerða stelpan hoppar grípur strákurinn hana ekki, hún liggur þá í jörðinni og fer að gráta en strákurin hlær… Skinsama stelpan vill ekki standa í svona hangsi og heldur áfram inn í völundarhúsið og strákarnir elta, þá verður hin stelpan sár og segist ekki ætla með þeim. Eftir þetta hverfur skynsama stelpan og nú er ég bara litla viðkvæma stelpan… og ég get ekki staðið upp því farangurinn sem ég er að bera fyrir strákinn er of þungur. hann heldur áfram án þess að hjálpa mér og ég fæ tár í augun og skil farangurinn eftir og labba í hina áttina… en að sjálfsögðu týnist ég og eitthvað er að elta mig og ég er að reyna að hlaupa en kemst ekkert áfram og verð að skríða til þess að komast áfram upp einhverjar tröppur í átt aftur til hinna…
Ég verð alltaf dálítið strand á draumum þar sem mér líður illa þannig að mig langar að biðja ykkur um smá hjálp hér…
Þú ert ekki orðin drukkin ef þú getur legið á gólfinu án þess að halda þér í ;)