getur einhver ráðið í þennann draum?
mig dreymdi að ég væri inní stórum og djúpum helli, það voru dropasteinar út um allann hellinn. ég var með fullt af fólki en það var ekki með nein andlit. en ég þekkti allt fólkið vel svo ég var ekkert hrædd við það.
þegar allir ætluðu að halda áfram þá komst ég ekkert því að ég var í hjólastól og það var svo mikið af steinum á gólfinu að ég komst ekkert áfram og enginn vildi hjálpa mér. svo byrjaði fólkið að hlaupa og fullt af leðurblökum kom og réðst á fólkið. ef leðurblaka náði einhverjum þá fékk hann andlit. svo vaknaði ég…
veit einhver hvað þetta þýðir?