Systir mína dreymdi að hún missti litla fingur og baugfingur af. Fyrst datt litli fingur af, og það var svoldið sárt en svo datt baugfingur af. Hún reyndi eins og hún gat að halda honum á en ekkert gekk og að lokum datt hann af. Þetta var alveg svakalega sárt og þegar hann byrjaði að detta af þá varð henni alveg sama um litla puttan. Hún var líka með giftingarhring á baugfingri og hún var svo hrædd um að hann myndi detta af og fara með puttanum. En sem betur fer bjargaðist það og hann datt ekki af. Henni fannst þetta alveg hræðilegt að hafa misst baugfingurinn og sársaukinn var mikill, en þegar kom í ljós að giftingahringurinn hélst á þá leið henni betur. Síðan gréri sárið bara allt í einu og allt varð bara ofsalega gott og henni var mjög létt. Eins og það væri þannig að allt væri gott sem endaði vel.
Endilega látið mig vita hvað þið haldið að þetta þýði!!!
Kv,
angie