Mig langar að koma því á framfæri að ég hef óskað eftir því við Abigel að hún setji upp sér kubb með greinonum sem hún er að skrifa um Tarot spilin. Þetta eru skemmtilegar og fróðlegar greinar og mér finnst miður að þær séu ekki allar saman svo að við hin sem höfum áhuga missum heildarmyndina og verðum að fara að leita eftir þessum greinum. Þetta er mjög gott framtak hjá henni og liggur mikil vinna á bak við þetta og ég tel að þessar greinar nýtist okkur betur ef þær eru allar á sama stað.
Vinsamlega látið ykkar álit í ljós á þessu.