Veit einhver merkingu þess að dreyma hring. Mig dreymdi að ég hefði fengið gefins tvo hringa frá vini mínum. Ég man bara hvernig annar þeirra leit út en þetta var hringur með risastórum bleikum steini á.
Þegar ég mátaði hringana pössuðu þeir hvorugir á mig. Þeir komust aðeins hálfa nögl á litla putta. Ég man að ég velti fyrir mér afhverju hann hafi gefið mér svona litla hringa og var hálf fúl yfir að hringarnir pössuðu ekki, en varð svo ákveðin í að fara og láta stækka hringina, sérstaklega þennan með steininum því hann var mjög flottur.

kv Eneka.