Veit ekki alveg hvort að ég er að skrifa á réttan stað en allavega þá þarf ég hjálp og læt því flakka. Málið er það að vinkona mín frá Englandi var að biðja mig um að finna fyrir sig enhverja rún sem hún hefur heyrt um og er víst verndar rún ferðamanna eða eitthvað svoleiðis. Ég er búin að leita um allt á netinu og finn ekkert af viti og er að fara yfirum því ég lofaði þessari vinkonu að ég gæti fundið rúnina! (Aldrei að lofa upp í ermina á sér!!!) Semsagt, ef einhver getur hjálpað mér þá endilega hafðu samband, ég yrði eilíflega þakklát!!
Bestu kveðjur,
Daneyz