Ég ættla að segja ykkur frá nokkrum eftirmynnilegustu draumunum mínum
í stuttu máli!
Þegar ég var yngri þá dreymdi mig ísbirni næstum á hverri nóttu
og þeir voru alltaf vondir!

Síðan var það mjög skrítinn draumur sem mig dreymdi þegar ég var í 6. bekk hann var þannig að ég var í íþróttum/leikfimi, alltílagi með það en síðan alltí einu slökknast öll ljósin (þetta er stór íþróttasalur) og allir lokast inni, margir voru píndir og drepnir í daumnum. síðan daginn eftir þá fór ég í leikfimi við vorum í blaki eða eitthvað þannig þá sparkar einn strákur boltanum hátt upp í loftið og hann fer beint í eitt ljósið og þá slökknast öll ljósin í salnum og ég varð náttúrulega dauðhrædd og dreif mig út úr salnum…

Jæja, þá held ég að það sé komið að ykkur núna!
Góða nótt og dreymi ykkur vel!!! múhahahahhaaaa… (geðveikt ill)
*Lifi rokkið*