ég veit ekki hvort að þetta hafi verið eitthvað bull.
en vinur minn var að fremja sjálfsmorð fyrir skömmu og ég syrgi hann rosalega mikið og sakna hans.

sama kvöld og ég komst að þessu og var að gráta þá langaði mig bara að vita afhverju, og mig langaði líka hvernig hann fór að því.

sömu nótt dreymdi mig að hann kom til mín og sagði mér að allt yrði í lagi, ég spurði hann afhverju hann hefði gert þetta og hann svaraði því, ég spurði hvernig gerðiru þetta og hann svaraði að hann hafi hengt sig.
ég sagði honum þá að það eina sem mig langaði til væri að kveðja hann og spurði hann hvort honum væri sama þótt ég myndi taka utan um hann og kveðja hann en hann svaraði: ,, nei, mér er ekki sama, því að kveðja það er það sama og þú munir aldrei sjá mig aftur og munir gleyma mér. svo labbaði hann í burtu…..

getur einhver sagt mér hvað þetta táknar????
endilega reynið það því´mig virkilega langar að vita hvað þetta táknar

kv.
spotta